Hraungata 7- Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
1. fundur
Lögð fram breyting á samþykktu byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir því að byggingin verði einangruð að utan en ekki að innan. Að hluta til fer bygging 15 cm út fyrir byggingarreit.
Ástæða breytingarinnar er sú að nýr framkvæmdaraðili er kominn að verkinu sem hefur haft þær áherslur að einangra byggingar sínar að utan.
Í ljósi aðdraganda málsins gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað þetta atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarráð Garðabæjar
02
17. (1783). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita A7 ehf., kt. 500614-0130 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Hraungötu 7.