Beint í efni

Góðakur 4 - breyting á lóðarmörkum - afsal

Málsnúmer 1708158

Ferill máls

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

5. fundur

Tillaga að breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir því að mörk lóða á milli Góðakurs 4 og Góðakurs 6 færist til austurs um 82 cm á 11,22 m kafla að norðanverðu. Lóð nr.6 stækkar um 9,2 m2 og lóð nr. 4 minnkar sem því nemur. Með vísan í 2.gr.lið a í Viðauka II um embættisfærslur skipulagsstjóra nr.20/2017 samþykkir skipulagsstjóri tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu sbr. 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Með vísan lið f í gr.2. í sama viðauka og í samræmi við 3.mgr.44.greinar sömu laga er grenndarkynning stytt þar sem að samþykki viðkomandi aðila liggur fyrir.