Beint í efni

Umsókn fyrir 19. júní

Málsnúmer 1805172

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

40. fundur

Þann 10. júní milli kl. 14:00 og 17:00 fer fram Stelpugolf á svæði GKG við Vífilsstaði í Garðabæ. Stelpugolf var fyrst haldið árið 2014 af golfkennaranemum Golfkennaraskóla PGA og síðan þá hefur gífurlegur fjöldi lagt leið sína á völlinn og sótt sér kennslu. PGA á Íslandi og Golfsamband Íslands halda uppteknum hætti en í ár mun tífaldur risameistari og einn allra þekktasti kylfingur sögunnar, Annika Sörenstam frá Svíþjóð, halda sýnikennslu í Stelpugolfi. Einnig mun Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur á evrópsku mótaröðinni í golfi, kenna golf. Markmið dagsins er að auka þátttöku kvenna á öllum aldri en að sjálfsögðu eru allir velkomnir.

ÍTG samþykkir að veita styrk úr 19. júnísjóði Garðabæjar til GKG vegna átaksverkefnisins "Stelpugolf" þann 10. júní nk. að upphæð kr. 100.000,-