Fundargerð bæjarráðs frá 14/8 ´18.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
10. (832). fundur
Ingvar Arnarson, ræddi 10. tl., samning um ráðningarkjör bæjarstjóra og lagði fram eftirfarandi tillögur.
„Garðabæjarlistinn leggur til að 5. grein samnings sem fjallar um bifreiðahlunnindi bæjarstjóra verði felld út.“
Greinargerð.
Garðabæjarlistinn telur að hér sé um óþarfa aukakostnað fyrir skattgreiðendur í Garðabæ og að launagreiðslur til bæjarstjóra dugi vel fyrir rekstri á bifreið.
Þá lagði Ingvar til að verði tillaga um 5. gr. samningsins felld komi eftirfarandi tillaga til afgreiðslu.
„Garðabæjarlistinn leggur til að 5. grein samnings sem fjallar um bifreiðahlunnindi bæjarstjóra verði breytt í eftirfarandi: Garðabær lætur bæjarstjóra í té rafmagns bifreið vegna starfsins og greiðir af henni allan rekstrarkostnað. Bæjarstjóra eru heimil einkaafnot af bifreiðinni og greiðir skatta vegna þeirra samkvæmt reglum ríkisskattstjóra um hlunnindamat.“
Greinargerð.
Garðabæjarlistinn telur mikilvægt að fylgja umhverfisstefnu bæjarins og sé mikilvægt að breyta þessari grein. Við viljum að bæjarstjóri fari fyrir með góðu fordæmi og noti umhverfisvænan samgöngumáta.
Ingvar lagði einnig fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur til að 9. grein samnings verði breytt í eftirfarandi: Laun samkvæmt 2. tl., skulu greidd í sex mánuði eftir að starfi lýkur.“
Greinargerð.
Það er nokkuð ljóst að yfirvinnu þarf ekki að greiða eftir að starfi lýkur og teljum við í Garðabæjarlistanum að þarna sé óvarlega farið með skattpening Garðbæinga.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagðar tillögur.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framlagðar tillögur.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi framlagðar tillögur.
Tillaga um að fella út 5. gr. í ráðningarsamningi bæjarstjóra er felld með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SHJ,JS,AG,BF,SS) gegn þremur (SDS,IA,VÁW).
Tillaga um breytingu á 5. gr. í ráðningarsamningi bæjarstjóra er felld með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SHJ,JS,AG,BF,SS) gegn þremur (SDS,IA,VÁW).
Tillaga um breytingu á 9. gr. í ráðningarsamningi bæjarstjóra er felld með sjö atkvæðum (GVG,ÁHJ,SHJ,JS,AG,BF,SS) gegn þremur (SDS,IA,VÁW).
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri vék sæti við umræðu og afgreiðslu tillagna um breytingu á ráðningarsamningi bæjarstjóra.
Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.