Fundargerð bæjarráðs frá 6/11 ´18
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
16. (838). fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 25. tl., bréf Margrétar Bjarkar Svavarsdóttur um uppsögn á starfi. Sigríður Hulda þakkaði Margréti fyrir störf hennar sem sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs og óskaði henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Ingvar Arnarson, ræddi 14. tl., erindi Billboard um biðskýli og auglýsingaskilti.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 16. tl., bréf umhverfis- og auðlindaráðherra um umhverfisþing.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 14. tl., erindi Billboard um biðskýli og auglýsingaskilti.
Ingvar Arnarson, ræddi 16. tl., bréf umhverfis- og auðlindaráðherra um umhverfisþing, 14. tl. erindi Billboard um biðskýli og auglýsingaskilti og 15. tl., bréf UMFÁ varðandi stuðning við starfsemi blakdeildar.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 8. tl., tilkynningu frá Jöfnunarsjóði um drög að nýrri reglugerð um Jöfnunarsjóð.
Fundargerðin sem er 25 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.