Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við hluta skólalóðar Flataskóla.

Málsnúmer 1903410

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. (1889). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust við opnun tilboða í framkvæmdir við endurbætur á hluta skólalóðar Flataskóla.

K22 ehf. kr. 39.636.800
Holt og Bolt ehf. kr. 43.815.500
Dráttabílar - vélaleiga ehf. kr. 26.535.500
Hellur og lagnir ehf. kr. 32.305.400

Kostnaðaráætlun kr. 31.923.600

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Dráttarbíla ? vélaleigu ehf. með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.