Beint í efni

Samstarf við Grósku

Málsnúmer 1905080

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Farið yfir viðburði Grósku á liðnu ári og framundan, rætt um samstarfið.

Formaður greindi frá fundi með fulltrúum úr stjórn myndlistarfélagsins Grósku. Gróska er nú á tíunda starfsári sínu og hyggst halda upp á afmælið með ýmsu móti. Nýverið hélt félagið vel heppnaða sumarsýningu í göngugötunni á Garðatorgi og undirbúningur er hafinn fyrir árlega Jónsmessugleði Grósku sem er haldin í samstarfi við Garðabæ.

Umræður voru um starfsemi Grósku. Einnig var rætt um starfsemi FabLab og möguleika á slíku.