Fyrirspurn Garðabæjarlistans um almenningssamgöngur milli Urriðaholts og Ásgarðs, dags. 14.08.20.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
32. (1940). fundur
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn:
„Eftir að hafa spurst fyrir um málið hjá Strætó bs og Garðabæ virðist fátt vera því til fyrirstöðu að hefja ferðir strætó á milli Urriðaholts og Ásgarðs og þannig auðvelda m.a. börnum og ungmennum að komast leiða sinna frá heimili og í íþróttir og tómstundir.
Því óskar Garðabæjarlistinn eftir svari við því hvenær eigi að fara að veita þá sjálfsögðu og mikilvægu þjónustu sem almenningssamgöngur eru. En beðið hefur verið eftir því að almenningssamgöngur komist á í einu fjölmennasta hverfi sveitarfélagsins sem Urriðaholt er og fer enn stækkandi.“
Bæjarstjóri sagði frá vinnu sem er í gangi við að bæta almenningssamgöngur við Urriðaholt sem gæti verið liður í leiðarkerfi Strætó bs. með minni strætisvögnum, þáttur í aukinni tíðni frístundabíls eða pöntunarþjónustu eins og hefur verið í boði.