Tillaga Garðabæjarlistans vegna fjárhagsáætlunar 2021 - tímabundin ráðning í stoðþjónustu.
Málsnúmer 2009020
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
12. (871). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur til að lagt verði mat á aukið álag á félagsþjónustuna við þær aðstæður sem nú eru uppi og þörfinni mætt með tímabundnum ráðningum til að styðja við þjónustuna.“
Sigurður Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu lagði til að henni verði vísað til umfjöllunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til frekari umfjöllunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.