Starfsskýrsla skógræktarfélags Garðabæjar
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
14 (22-26). fundur
Starfsskýrsla Skógræktarfélags Garðabæjar lögð fram.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
38. fundur
Lagt fram.
Bókun Garðabæjarlistans;
Fulltrúi Garðabæjarlistans tekur undir með Skógræktarfélagi Garðabæjar að fengnir verði óvilhallir aðilar til að meta þann skaða sem Skógræktarfélagið verður fyrir vegna fyrirhugaðs golfvallar í Smalaholti á landi Skógræktrinnar og að tjónið verði að fullu bætt. Augljóst er að peningar koma ekki í veg fyrir það tjón sem hlýst af þessari framkvæmd fyrir umhverfið þar sem allt að 30 ára gömul tré verða felld. Það tekur mörg ár að rækta upp tré svo þau bindi koltvísýring að einhverju marki.
Bendi á bókun Garðabæjarlistans um sama mál í umhverfisnefnd 11.11 2020.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
27. fundur
Lagt fram.
Bókun
Við í Garðabæjarlistanum lýsum ánægju okkar yfir starfsskýrslu skógræktarfélagsins og því mikla og góða starfi sem félagið hefur unnið frá stofnun. Það fólk sem hér hefur lagt hönd á plóg á allan heiður skilið. Við tökum heilshugar undir óánægju stjórnar að golfvöllur sé skipulagður inn í skóginn í Smalaholti. Á svæðinu sem ætlað er undir golfvöll samkvæmt skipulagi er í dag elsti og gróskumesti skógur svæðisins. Gróðursetning skógarins hófst á þessu svæði 1989.
Skógurinn er ómetanlegt útivistarsvæði með vel skipulögðum og úthugsuðum gönguleiðum, þar sem hægt er að ganga í svo til hvaða veðri sem er. Það er sorglegt til þess að vita að gönguieiðir og stór hluti skógarins eiga að fara undir golfvöll samkvæmt nýju skipulagi. Átta menn sig á hverju þeir eru að fórna? Það þarf líka pláss fyrir göngufólk og þá sem stunda ekki golf.
Hafa bæjaryfirvöld látið gera gróðurmat á svæðinu til að átta sig á kostnaði við verkefnið? Ef ekki, er það ekki tímabært?
Nú á dögum loftslagsbreytinga þegar leitað er allra leiða til að draga úr áhrifum gróðurhúsalofttegunda, áformar Garðabær að höggva niður skóg.
Við leyfum okkur að vona að þessi ákvörðun verði endurhugsuð.