Beint í efni

Bréf orlofsnefndar Kvenfélags Gullbringu- og Kjósarsýslu varðandi greiðslu vegna orlofs húsmæðra, dags. í apríl 2021.

Málsnúmer 2104477

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

18. (1976). fundur

Bæjarráð telur greiðslu framlags til orlofs húsmæðra stríða gegn almennum viðhorfum sem grundvallast m.a. á jafnréttissjónarmiðum. Bæjarráð lýsir vonbrigðum með að frumvarp til laga um afnám laga um orlof húsmæðra sem lagt var fram Alþingi í mars árið 2017 hafi ekki orðið að lögum.

Bæjarráð lýsti yfir stuðningi við frumvarpið á fundi sem haldinn var 21. mars 2017.

Bæjarráð telur einnig að vafasöm heimild sé til greiðslu framlagsins nú þegar liggur fyrir að vegna aðstæðna í Covid voru auglýstar ferðir á vegum orlofsnefndar felldar niður.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra og felur honum að kanna á hvern hátt eftirliti er háttað með ráðstöfun greiðslna sveitarfélaga til orlofsnefndarinnar.

Fylgiskjöl