Beint í efni

Íþróttamenning/ómenning - viðbrögð við ofbeldismálum

Málsnúmer 2109069

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

33. fundur

í ljósi umræðunnar sem verið hefur undanfarna daga mun á næsta fundi þann 14. sept. nk. Kolbrúnu Hrund, stjórnarmaður í ÍSÍ og sú sem leiðir vinnuna fyrir KSÍ, koma til okkar og taka samtalið um næstu skref og hvað við sem sveitarfélag getum gert til að styðja við breytingar á kúltúr o.fl.
Jafnframt kemur framkvæmdastjóri Stjörnunnar Ása Inga Þorsteinsdóttir koma á fundinn til að fara yfir verkferla og næstu skref hjá félaginu.

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, stjórnarmaður í ÍSÍ og sú sem leiðir vinnuna fyrir KSÍ kom á fundinn og ræddi næstu skref og hvað við sem sveitarfélag getum gert til að styðja við breytingar á kúltúr o.fl. Lagði hún m.a. áherslu á að kallað sé eftir samantekt á aðgerðum félaga í jafnréttismálum út frá stefnu þeirra og að öllum iðkendum og foreldrum séu kynntar leiðir til að tilkynna óæskilega hegðun.
Framkvæmdastjóri Stjörnunnar Ása Inga Þorsteinsdóttir kom á fundinn á eftir Kolbrúnu til að fara yfir verkferla og næstu skref hjá félaginu.