Beint í efni

Sumarfjör námskeið fyrir 8-12 ára 2021

Málsnúmer 2109256

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

33. fundur

Sumarfjör 8-12 ára barna í Garðabæ var hluti af atvinnuátaki VMST fyrir ungt fólk. Alls störfuðu 17 ungmenni við Sumarfjörið í 7klst á dag í 7 vikur. Námskeiðin voru skipulögð viku í senn 10-12 og 13-15 á skólalóðum grunnskólanna (Hosstaða-, Flata-, Sjálands-, Urriðaholts- og Álftanesskóla) tímabilið 21. júní til 30. júlí. Mæting var misjöfn eftir skólum en reynt að sameina hópa þar sem það var hægt. Heildarfjöldi barna í hverri viku var: 1.v) 21, 2.v) 30, 3.v) 16, 4.v) 12, 5.v) 15, og 6.v) 21 barn.

Kynnt var atvinnuátak í samvinnu við VMST fyrir ungt fólk sl. sumar. Alls störfuðu 17 ungmenni við námskeið sem kallað var "Sumarfjör" og var fyrir börn 8-12 ára.