Beint í efni

Íþróttamaður ársins 2021

Málsnúmer 2111248

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

38. fundur

Val á íþróttamanni ársins karli og konu.
Val á liði ársins.
Val á þjálfurum ársins.
Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum.
Afhending og útsending verður sunnudaginn 9. janúar 2022 frá Sveinatungu.Útsending hefst kl. 14:00

Val á íþróttamanni ársins: Helgi Laxdal Aðalgeirsson í karlaflokki og Kolbrún Þöll Þorradóttir í kvennaflokki.
Val á liði ársins: Stjarnan meistaraflokkur kvenna í hópfimleikum.
Val á þjálfurum ársins: Óskar Þorsteinsson körfuknattleiksþjálfari hjá Stjörnunni og Una Brá Jónsdóttir yfirþjálfari mfl. kvenna í hópfimleikum hjá Stjörnunni.
Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum hljóta; Jónatan Svavarsson skátafélaginu Vífli, Guðmundur Oddsson GKG, Stefanía Magnúsdóttir FEBG og Elín Jóhannsdóttir fyrir störf í Bessastaðasöfnuði.
Afhending og útsending verður sunnudaginn 9. janúar 2022 frá Sveinatungu. Útsending hefst kl. 14:00

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

37. fundur

ÍTG fer yfir tillögur að tilnefningum um íþróttafólk ársins, karl og konu.
Almenningi verður boðið að taka þátt í vefkosningu sem stendur yfir jól og áramót. Gildir niðurstaða þeirrar kosningar sem eitt atkvæði í kjörinu á móti atkvæðum nefndarfulltrúa.

ÍTG fór yfir tillögur að tilnefningum um íþróttafólk ársins, karl og konu 2021.
Eftirtaldir einstaklingar verða í kjöri til íþróttamanns Garðabæjar:
Aron Friðrik Georgsson, kraftlyftingum í Stjörnunni.
Aron Snær Júlíusson, golfi í GKG.
Helgi Laxdal Aðalgeirsson, fimleikum í Stjörnunni.
Jón Þór Sigurðsson, skotfimi í Skotíþróttafélagi Kópavogs.
Anna María Baldursdóttir, knattspyrnu í Stjörnunni.
Hulda Klara Gestsdóttir, golfi í GKG.
Kolbrún Þöll Þorradóttir, fimleikum í Stjörnunni.
Júlíana Karítas Jóhannsdóttir, badminton í TBR.
Almenningi verður boðið að taka þátt í vefkosningu sem stendur yfir jól og áramót. Gildir niðurstaða þeirrar kosningar sem eitt atkvæði í kjörinu á móti atkvæðum nefndarfulltrúa ÍTG.
Tilnefningar verða kynntar í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

36. fundur

ÍTG kallar eftir tilnefningum vegna verðlaunaveitinga á Íþróttahátíð Garðabæjar.Viðurkenningar hljóta þeir sem keppa með félögum í Garðabæ eða stunda íþróttagreinar utan Garðabæjar sem ekki eru í boði innan bæjarfélagsins.
Viðurkenningar sem veittar verða eru:
1.Landsliðsþátttaka: Óskað er eftir upplýsingum um hverjir hafi keppt í fyrsta skipti með A-landsliði eða U-landsliðum. Viðurkenning er veitt það ár sem einstaklingur nær fyrst að keppa með landsliði.
2.Verðlauna á erlendum vettvangi s.s. HM, EM, NM eða sambærilegum mótum hvort heldur er sem einstaklingar, para- eða í liðakeppni.
3.Framúrskarandi árangur: Flokkar eða einstaklingar sem unnið hafa til Íslands-, bikar- eða deildarmeistaratitla, eða ígildi þeirra og tilgreina nafn og kennitölu þeirra.
4.Annar framúrskarandi árangur sem þið teljið vert að vekja athygli á.
ÍTG mun sérstaklega auglýsa eftir tilnefningum vegna íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar.

ÍTG kallar eftir tilnefningum vegna verðlaunaveitinga á Íþróttahátíð Garðabæjar.Viðurkenningar hljóta þeir sem keppa með félögum í Garðabæ eða stunda íþróttagreinar utan Garðabæjar sem ekki eru í boði innan bæjarfélagsins.
Viðurkenningar sem veittar verða eru:
1.Landsliðsþátttaka: Óskað er eftir upplýsingum um hverjir hafa keppt í fyrsta skipti með A-landsliði eða U-landsliðum. Viðurkenning er veitt það ár sem einstaklingur nær fyrst að keppa með landsliði.
2.Verðlaun á erlendum vettvangi s.s. HM, EM, NM eða sambærilegum mótum hvort heldur er sem einstaklingur, para- eða í liðakeppni.
3. Framúrskarandi árangur: Flokkar eða einstaklingar sem unnið hafa til Íslands-, bikar- eða deildarmeistaratitla, eða ígildi þeirra.
4.Annar framúrskarandi árangur sem talið er vert að vekja athygli á.
ÍTG mun sérstaklega auglýsa eftir tilnefningum vegna íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar.
Stefnt er að sama fyrirkomulagi á Íþróttahátíðinni og í fyrra.