Flóttamannavegur - staða mála.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
7. (2155). fundur
Bæjarstjóri fór yfir samskipti við Vegagerðina vegna öryggisbætandi aðgerða á Flóttamannavegi. Þar er um að ræða gerð undirganga og hringtorga sem fela m.a. í sér tengingu inn og út úr Urriðaholti. Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir tengd skipulagsmál, hönnun og framkvæmdir.
Bæjarráð Garðabæjar
02
4. (2105). fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir stöðu mála varðandi tengingar Urriðaholts við Flóttamannaveg en samkvæmt deiliskipulagi er gert ráð fyrir að Flóttamannavegur verði tengibraut. Samkvæmt deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts er gert ráð fyrir að bæði Holtsvegur og Urriðaholtsstræti geti tengst Flóttamannavegi. Einnig var rætt um stöðu mála varðandi umferðarflæði og tengingar við Reykjanesbraut.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að undirbúningi vegna tengingar Urriðaholts við Flóttamannaveg.