Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stígs í friðlandi umhverfis Búrfell.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (2030). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita Umhverfisstofnun framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna stígagerðar í friðlandi umhverfis Búrfell. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála fyrir friðlandið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Lögð fram umsókn Umhverfisstofnunar um framkvæmdaleyfi vegna stígagerðar umhverfis Búrfell sem er innan friðlands.
Um er að ræða vinnu á stígum sem eru nú þegar til staðar og gert er ráð fyrir í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.
Áætlað er að færa stíginn á einum stað aðeins frá hlíðum gígsins til gera þessa legu aðgengilegri fyrir umferð hjóla.
Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfi í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.