Beint í efni

Rökkvan listahátíð

Málsnúmer 2210231

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

66. fundur

Staða mála

Rökkvuhópnum þakkað fyrir ómetanlegt framlag til menningarmála í Garðabæ.Hópurinn hefur nú flogið á vit nýrra ævintýra og sækir sér frekari menntunar. Menningar- og safnanefnd hvetur nýja hópa til samtals um sambærileg verkefni.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

44. fundur

Hvernig tókst til?

Rætt um listahátíðina Rökkvuna sem haldin var í fyrsta sinn föstudagskvöldið 28. október sl. Hópur ungmenna stóð að skipulagningu ásamt starfsmönnum bæjarins. Rætt um framtíð hátíðarinnar. Hátíðin vakti athygli og almenn ánægja með hana. Menningar- og safnanefnd þakkar öllum sem lögðu hönd á plóg.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

43. fundur

28. október á Garðatorgi.

Menningarfulltrúi sagði frá skipulagningu á listahátíðinni Rökkvu sem mun fara fram 28. október á Garðatorgi. Hópur ungmenna sá um hugmyndavinnu og mótun dagskrár en Ólöf Breiðfjörð hefur yfirumsjón með framkvæmd í félagi við Gunnar Hrafn Gunnarsson og fleiri starfsmenn bæjarins. Lionsmenn munu koma að undirbúningi sem og ungmennin sem eiga veg og vanda að dagskránni. Hjálparsveit Skáta í Garðabæ munu sjá um gæslu.

Fylgiskjöl