Búðarflöt 1 - viðbygging - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Málsnúmer 2211528
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
12. fundur
Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að reisa útsýnisrými ofan á núverandi byggingu að Búðarflöt 1.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri grenndarkynni byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir útsýnisrými. Ekkert deiliskipulag telst í gildi en drög að deiliskipulagi fyrir Vestri Skógtjarnarsvæði gerðu ráð fyrir útsýnisrými á aðliggjandi lóð auk þess sem fordæmi fyrir útsýnisrými eru í nágrenninu.