Undirbúningur fyrir ungmennaþing.
Ferill máls
Ungmennaráð Garðabæjar
01
4. fundur
Til hvaða markhóps viljum við ná til?
Nemendaráð
Til þeirra sem hafa áhuga.
13 til 16 ára s.s. 7. til 10. bekkur.
Hvað er okkar helsta markmið?
Ná fram hugmyndum sem við getum unnið út frá.
Sýna krökkum að við tökum þeirra hugmyndum og vinnum út frá þeim, þau eru með rödd sem hlustað er á.
Hvar?
Íþróttahúsi í Garðabæ.
Hvenær?
Í október eða nóvember.
Á skólatíma.
Hve lengi?
Einn og hálfan tíma.
Hvernig ætlum við að ná til ungmenna?
Ball síðar um kvöldið.
Hvernig ætlum við að kynna Ungmennaþingið?
Kynningar í skólunum.
Garðaskóli
Smala árgöngum saman í Gryfjuna.
Álftanesskóli og Sjálandsskóli
Kynningar í bekkjum og/eða matsal.
Hvað ætlum við að leggja áherslu á og spurningar út frá þeim áherslum?
Skólamál
Spurningar
Hvernig getum við bætt námið?
Hvernig getum við gert íslensku skemmtilegri?
Hvernig getum við gert námið almennt skemmtilegra?
Samgöngur
Spurningar
Hvernig er hægt að bæta strætósamgöngur?
Fræðsla
Er eitthvað ákveðið fræðsluefni sem þið viljið fá í skólann?
Gaman í Garðabæ
Spurningar
Hvað finnst ykkur vanta í Garðabæ?
Hvernig getum við bætt samskipti á milli skóla.
Hvernig er hægt að bæta félagslífið í Garðabæ?
Ungmennaráð Garðabæjar
02
4. fundur
Tómas og Valgerður fóru yfir starfsáætlun ársins hjá ungmennaráðinu og hvað væri í vændum næstu mánuði.