Beint í efni

Fráveitumál - endurskoðun 4. kafla í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030

Málsnúmer 2304465

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

7. fundur

Skipulagssstjóri og sviðsstjóri umhverfissviðs gerðu grein fyrir þeirri tillögu að fjallað verði um fráveitu mál í þeirri vinnu sem nú fer fram við endurskoðun 4.Kafla greinargerðar Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem fjallar um samgöngu-og þjónustukerfi. Áformað var að við endurskoðun þess kafla yrði fyrst og fremst hugað að stígakerfi og almenningssamgöngum.
Fyrir liggur að huga þarf að fráveitumálum, m.a. á Álftanesi sem þurfa að eiga sér stoð í aðalskipulagi.
Skipulagsnefnd tekur undir tillöguna og leggur til að í þeirri mótun sem nú fer fram við endurskoðun 4.kafla verði einnig hugað að fráveitukerfi Garðabæjar og fengin verði sérfræðiráðgjöf á því sviði.