Fundur ungmennaráðs með bæjarstjóra
Ferill máls
Ungmennaráð Garðabæjar
01
2. fundur
Málefni til umræðu.
Umhverfis - samgöngumál. Ræddar almenningssamgöngur. Fram kom álit ungmennaráðsfulltrúa að strætókerfið væri ekki gott og þjónustan lök fyrir Álftanes. Leiðir 22 og 23. Alltaf verið að skera niður tímann. Nefndu dæmi um að pöntunarþjónustan hefði ekki virkað vel. Lent í langri bið og bið í síma.
Rætt um húsnæðismál fyrir ungt fólk og spurt hvað Garðabær væri að gera í því. Bæjarstjóri benti helst á uppbyggingu í nýjum hverfum. Margt ungt fólk sest að t.d. í Urriðaholti.
Sundlaugamál. Ungmennaráð ræddi möguleika á meiri opnun sundlauga. Bæjarstjóri tjáði að það væri tilraun í gangi með meiri opnun 2023 og eftir að meta reynsluna af því.
Ungmennaráðsfulltrúar ræddu áhuga sinn á að tengjast öðrum ungmennaráðum og eiga samskipti og læra af.
Rætt um ungmennahús - stað fyrir ungt fólk til að hittast á - umræða verið í dvala. Bæjarstjóri sagði málið á dagskrá af og til og m.t.t. frekari nýtingar á húsnæði við Garðatorg.
Ungmennaráðsfulltrúar nefndu rýmkun hvatapeninga - einkum námsmenn fram til 20 ára.