Fundargerð bæjarráðs frá 30/1 ´24.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
2. (935). fundur
Harpa Rós Gísladóttir, ræddi 13. tl., tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi nýtt og skilvirkara fyrirkomulag við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili og 18. tl., möguleikar á samstarfi um endurbætur og notkun húsnæðisins við Holtsbúð 87 (Klaustrið).
Stella Stefánsdóttir, ræddi 12. tl., bréf Reykjavíkurborgar varðandi úrsögn borgarinnar úr Reykjanesfólkvangi.
Almar Guðmundsson, ræddi 12. tl., bréf Reykjavíkurborgar varðandi úrsögn borgarinnar úr Reykjanesfólkvangi og 18. tl., möguleikar á samstarfi um endurbætur og notkun húsnæðisins við Holtsbúð 87 (Klaustrið), og 19. tl., tengingu byggðar í Urriðaholti við Flóttamannaveg.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 12. tl., bréf Reykjavíkurborgar varðandi úrsögn borgarinnar úr Reykjanesfólkvangi.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 19. tl., tengingu byggðar í Urriðaholti við Flóttamannaveg.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 19. tl., tengingu byggðar í Urriðaholti við Flóttamannaveg.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 19. tl., tengingu byggðar í Urriðaholti við Flóttamannaveg.
Fundargerðin sem er 20 tl., er samþykkt samhljóða.