Beint í efni

Tilkynning frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi nýtt og skilvirkara fyrirkomulag við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili, dags. 11.01.24.

Málsnúmer 2401508

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

4. (2105). fundur

Lögð fram tilkynning þar sem fram kemur að fjármála- og efnahagsráðherra og heilbrigðisráðherra hafa ákveðið að breyta fyrirkomulagi við öflun húnsæðis fyrir hjúkrunarheimili. Fyrir liggur skýrsla starfshóps þar sem fram koma tillögur um að ríkið sjái alfarið um öflun húsnæðis undir rekstur hjúkrunarheimila í gegnum leigusamninga við fasteignafélög og aðra sérhæfða aðila á grundvelli útboðs.

Bæjarráð lýsir ánægju með breytt fyrirkomulag við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili.