Beint í efni

Opnun tilboða í hirðu úrgangs við heimili í Mosfellsbæ og Garðabæ.

Málsnúmer 2402318

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

14. (2115). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í hirðu úrgangs við heimili í Mosfellsbæ og Garðabæ

Útboðshluti 1: Lífrænt og almennt

Íslenska gámafélagið ehf. kr. 929.456.018.

Terra umhverfisþjónusta ehf. kr. 970.277.910.

Kubbur ehf. kr. 1.212.838.443

Kostnaðaráætlun kr. 1.163.088.129.

Útboðshluti 2: Pappír og plast

Íslenska gámafélagið ehf. kr. 740.383.555.

Kubbur ehf. kr. 782.439.793.

Terra umhverfisþjónusta ehf. kr. 798.145.013.

Kostnaðaráætlun kr. 898.080.279.

Útboðshluti 3: Djúpgámar

Terra umhverfisþjónusta ehf. kr. 26.953.136.

Íslenska gámafélagið ehf. kr. 29.703.456.

Kubbur ehf. kr. 68.758.000.

Kostnaðaráætlun kr. 39.560.603.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Íslenska gámafélagsins ehf. í útboðshluta 1.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Íslenska gámafélagsins í útboðshluta 2.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Terra umhverfisþjónjustu ehf. í útboðshluta 3.

Samþykktirnar eru með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86.gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106.gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

02

7. (2108). fundur

Egill Daði Gíslason, deildarstjóri framkvæmda á umhverfissviði gerði nánari grein fyrir skilmálum vegna fyrirhugaðs útboðs Mosfellsbæjar og Garðabæjar á hirðu alls úrgangs frá heimilum. Gert er ráð fyrir að samningur veri gerður til fimm ára með ákvæði um heimild til framlengingar um eitt ár sem gildir í þrjú ár.

Bæjarráð samþykkir útboðsskilmála og heimilar auglýsingu útboðs.