íþróttir barna og frístund
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
2. fundur
Til upplýsingar er nýtt fyrirkomulag æfinga 6 og 7 ára barna hjá Stjörnunni í samstarfi við frístundaheimili og grunnskóla Garðabæjar.
Skráningar hafa gengið vonum framar og mikil ánægja meðal foreldra með þetta nýja fyrirkomulag.
Til upplýsingar er nýtt fyrirkomulag æfinga 6 og 7 ára (1. og 2. bekkjar) barna hjá Stjörnunni í samstarfi við frístundaheimili og grunnskóla Garðabæjar. Handbolta-, körfubolta-, fótbolta- og fimleikadeildir eru með í þessu skipulagi þar sem ein æfing á viku fer fram í íþróttahúsi viðkomandi skóla. Starfsmaður viðkomandi frístundaheimilis fylgir hverjum hópi á æfinguna og er með þeim þar til þau eru komin aftur í sitt frístundaheimili. Þau börn sem enda æfingu í íþróttahúsinu eru þá sótt þangað af foreldrum. Frístund Urriðaholtsskóla nýtir nýja íþróttahúsið við Urriðaholtsskóla, Hofsstaðaskóli nýtir Mýrina og börn úr Barnaskóla Hjallastefnunnar, Flataskóla og Sjálandsskóla fara í Ásgarð.
Skráningar hafa gengið vonum framar og mikil ánægja meðal foreldra með þetta nýja fyrirkomulag.