Heimsókn leikskólanefndar í Bæjarból
Málsnúmer 2405297
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
20. fundur
Kynning á endurbótum, viðbyggingu og starfsemi leikskólans Bæjarbóls. Stjórnendur skólans þær Harpa Dan Þorgeirsdóttir og Auður Ösp Guðjónsdóttir kynntu fyrir leikskólanefnd endurbætur og stækkun sem skólinn hefur gengið í gengum síðustu misseri. Einnig sögðu þær frá áskorunum síðasta árs og þeim tækifærum sem framundan eru t.a.m. endurskoðun á skólanámskrá/stefnu leikskólans og þróun matstofu.