Verðfyrirspurn, dælubrunnur vegna hreinsistöðvar við Hrakhólma.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
45. (2146). fundur
Lagt fram bréf Eflu vegna dælubrunna sem settir verða niður á Álftanesi á fyrri hluta árs 2025. Kröfur Garðabæjar eru um greitt aðgengi ofan í brunnana og að aðgengið verði í formi hringstiga, en ekki lóðrétts stiga. Dælubrunnarnir verða niðurgrafnir en lokin munu standa um 30cm upp úr yfirborði. Um er að ræða fjóra brunna ásamt samteningar milli þeirra.
Lagt fram bréf Eflu vegna verðfyrirspurnar 104052-FYS-001-V01 sem send var til þriggja mögulegra birgja á brunnalausnum sem þessum í leit að tilboðum. Birgjarnir voru Iðnver, Varma- og Vélaverk og Vatnsvirkinn. Þrjú tilboð bárust.
Tilboð 1 var frá Varma- og Vélaverki, en uppfyllti ekki kröfurnar sem óskað var eftir.
Tilboð 2 var frá Vatnsvirkjanum. Það samræmdist kröfum í verðfyrirspurn að nær öllu leyti. Kostnaður við þessa lausn er kr. 57.523.529 án vsk.
Tilboð 3 var frá Varma- og Vélaverki. Það samræmdist kröfum í verðfyrirspurn í virkni en fyrirkomulagið annað. Kosnaður við þessa lausn er kr. 67.900.000 án vsk.
Efla mælir með töku á Tilboði 2 frá Vatnsvirkjanum að fjárhæð kr. 57.523.529 án vsk.
Bæjarráð samþykkir að taka Tilboði 2 frá Vatnsvirkjanum, að fjárhæð kr. 57.523.529 án vsk. og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins.