Beint í efni

Umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem felst í sameiningu lóða við Þorraholt ofl.

Málsnúmer 2407313

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

10. fundur

Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingar á deiliskipulagi Hnoðraholts Norður sem ná til fjölbýlishúslóðanna Þorraholt 3, 5, 7, 9, 11,13,15,17 og 19, húsgerðir F1 og F2.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum auk smærri lagfæringa:
- Byggingarmagn neðanjarðar breytist á lóð Þorraholts 3.
- Lóðir 5, 7 og 9 sameinast í eina lóð.
- Byggingarreitir og byggingarmagn neðanjarðar breytast á lóðum Þorraholt 5, 7 og 9.
- Lóðir 11, 13 og 15 sameinast í eina lóð.
- Lóðir 17 og 19 sameinast í eina lóð.
Tillögu að sameiningum lóða eru vegna útfærslu á bílakjöllurum.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr. 43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr. 44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að deiliskipulagsbreytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.