Bréf Íþróttasambands fatlaðra um leyfi starfsmanns á launum, dags. 16. júlí 2024.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
29. (2130). fundur
Í bréfinu er farið fram á að Kári Jónsson, íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi fái leyfi á launum til að fylgja íslenskum þátttakendum til Parísar á Paralympics/Ólympíumóti fatlaðra. Leikarnir standa yfir frá 28. ágúst til 8. september.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs á grundvelli reglna frá 28. júní 2022 um leyfi starfsmanna Garðabæjar til þátttöku í íþróttamótum án skerðingar launa.
Bæjarráð bendir á mikilvægi afreksstarfs og hvetur ríkisstjórn Íslands og Afrekssjóð ÍSÍ að stuðla að frekari eflingu afreksstarfs meðal íslenskra íþróttamanna meðal annars með greiðslu vinnutaps þjálfara, starfsmanna og íþróttafólks vegna þátttöku á Ólympíuleikum og öðrum alþjóðlegum mótum.