Beint í efni

Starfsáætlun ÍTG 2024-2025

Málsnúmer 2408264

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

30. fundur

Drög að starfsáætlun ÍTG 2024-2025

Starfsáætlun ÍTG 2024-2025 var lögð fram og samþykkt með fyrirvara um mögulegar breytingar á dagskrárliðum.
Tilgangur starfsáætlunar íþrótta- og tómstundaráðs er að tryggja að tímasetja helstu verkefni á nefndarfundum, til að skipuleggja mætingu utanaðkomandi aðila á fundi og undirbúning funda nefndarinnar.
Gera má ráð fyrir að reglubundnir nefndarfundir séu haldnir 8-10 sinnum á ári, 4-5 fundir að vori og 4-5 að hausti. Sumarfrí verður í júlí. Að öllu jöfnu verði fundað annan miðvikudag í mánuði klukkan 08:00.
Frekari upplýsingar um fundi og fundarsköp nefndarinnar er að finna í III. kafla samþykktar um stjórn Garðabæjar.
Kynnt dagskrá er ekki tæmandi og getur tekið breytingum.
Næsti fundur verður 18. september í stað 11. september.