Frumkvæðisathugun á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og eldra fólk á landsvísu.
Ferill máls
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
01
2. fundur
Kynning á niðurstöðum frumkvæðisathugunar.
Kynning á niðurstöðum frumkvæðisathugunar á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og eldra fólk á landsvísu. Engar athugasemdir bárust tengdar þjónustu Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
11. (2159). fundur
Niðurstaða frumkvæðisathugunar gæða og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og eldra fólk. Athugunin leiddi í ljós að af 61 sveitarfélagi sem varaði bjóða 57 sveitarfélög (92%) upp á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og 55 sveitarfélög (89%) fyrir eldra fólk.
Í ljósi niðurstaðna athugunarinnar beinir GEV því til sveitarfélaga að tryggja að einkaaðilar sæki um rekstrarleyfi til GEV í samræmi við 5.gr. laga nr. 88/2021. GEV bendir á að sveitarfélögum sé óheimilt að semja um veitingu þjónustu skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga við aðra en þá sem fengið hafa rekstrarleyfi frá GEV.