Skerpluholt 2 -kjallari - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Málsnúmer 2409494
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
12. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að Skerpluholti 2 um útfærslu sem gerir ráð fyrir kjallara. Vísað er til þess að landslag á lóð gefi tilefni til þess.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að hugmyndin sé útfærð nánar með tilliti til aðliggjandi lands til vesturs og suðurs sem verður í framtíðinni opið svæði í almenningseigu.