Kauptún 4 - Auglýsingaskilti á norðurhlið, umsókn um byggingarleyfi.
Málsnúmer 2410089
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
14. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir nýrri útfærslu á auglýsingaskilti á norðurhlið verslunarhúss við Kauptún 4.
Tillagan gerir ráð fyrir því að skiltið verði sjálflýsandi með LED lýsingu með stillanlegu birtustigi.
Stærð skiltis er í samræmi við ákvæði deiliskipulags sem segir að flatarmál þess skuli ekki vera stærra en 10% af flatarmáli framhliðar. Stærð þess er óbreytt frá því skilti sem er á húsinu í dag.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi sé veitt sem er í samræmi við framlögð gögn byggingarleyfisumsóknar og að útfærsla þess sé í samræmi við lýsingu auglýsingaskiltis með stöðugri lýsingu eins og deiliskipulag heimilar.