Beint í efni

Minnisblað um stöðu leigusamnings um svæði á Rjúpnahæð.

Málsnúmer 2410383

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

13. (2161). fundur

Lagt fram minnisblað Juris um stöðu leigusamnings um 40,13 ha svæði á Rjúpnahæð í eigu Garðabæjar og hugsanleg fyrirhuguð lok leigusamningsins um svæðið.

Í minnisblaðinu kemur fram að ekki verði annað ráðið en að bæði Fjarskiptafélagið Rjúpnahæð ehf. (í eigu Kópavogsbæjar) og Garðabær hafi í reynd hag af því að leigusamningi um Rjúpnahæð, hluta I, ljúki sem fyrst. Af óformlegum umleitunum Garðabæjar og Kópavogsbæjar vegna þessa má ráða að ekki er útilokað að Kópavogsbær sé sama sinnis og jafnvel tilbúinn að segja samningnum upp fyrir lok hans 31. ágúst 2026.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að rita Kópavogsbæ erindi, þar sem óskað verður eftir viðræðum um skil á landsvæðinu, sbr.9.gr. leigusamningsins.