Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 - Tillaga, rammahluti - Borgarlína 1. lota: Ártún - Fossvogsbrú
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
16. fundur
Lögð fram tilaga að breytingu Aðalskipulags Reykjavíkur 2040.
Um er að ræða tillögu að rammahluta aðalskipulagsins sem fjallar um Borgarlínuna. Í honum birtast forsendur og viðmið fyrir framkvæmdum, bindandi stefna um legu Borgarlínunnar og staðsetningu kjarnastöðva, ásamt leiðbeiningum um forgangsröðun ferðamáta og skipulag göturýmis. Jafnframt eru kynnt þau viðmið sem líta ber til við útfærslu Borgarlínunnar, hvort sem er í deiliskipulagi göturýmis eða hönnun innviða Borgarlínunnar. Nákvæm útfærsla Borgarlínunnar verður ákvörðuð í deiliskipulagi fyrir hvern legg. Í hönnunarleiðbeiningunum er svigrúm til að móta Borgarlínuna að þörfum, rými og ásýnd umhverfisins. Fyrsta lota Borgarlínunnar er um 14 km löng og liggur milli Ártúnshöfða í Reykjavík og Hamraborgar í Kópavogi. Lengd Borgarlínuleiðar innan Reykjavíkurborgar er tæplega 12 km.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 25.janúar 2025.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.