Strætó og samgöngur í Garðabæ - Undirbúningur fyrir fund með Hrannari Braga formanni íþrótta- og tómstundaráðs.
Ferill máls
Ungmennaráð Garðabæjar
01
3. fundur
Umræðupunktar til undirbúnings fundar með formanni ÍTG.
Ungmennahús, samgöngur, félagsmiðstöðvar, hvatapeningar, sundmál.
Ungmennaráð Garðabæjar
02
3. fundur
Rætt um barnaþingin sem eru haldin fyrir miðdeildir í öllum grunnskólum í Garðabæ.
Fórum yfir mikilvæga punkta sem komu fram á barnaþinginu hjá Urriðaholti og Álftanesi.
Hugmynd kom upp að í ljósi einhverra kvartana nemenda undan hegðun kennara væri sniðugt að fá fræðslu fyrir alla grunnskólakennara um hegðun og samskipti.
Ræddum lauflétt um samfélagsmiðla og hvernig við ætlum að ná til ungs fólks með þeim.
Langar okkur að gera flott kynningarmyndband á ungmennaráðinu sem væri vel unnið og mjög hnitmiðað til að ná athygli ungmenna á mikilvæga starfi okkar.
Ungmennaráð Garðabæjar
03
2. fundur
a) Rætt um opnunartíma sundlauga, vilja að það sé eins opnunartímar um helgar.
b) Senda erindi vegna opnunartíma sundlauga.
c) Rætt um verkfallsaðgerðir og áhrif þess á ungmenni.
d) Búið að opna oftar í félagsmiðstöðvum fyrir ungmennin.
e) Ákveðið að taka afstöðu og senda á Garðabæ.
f) Umsjónarmaður Barnvænt sveitarfélag mætti og ræddi stöðu aðgerðaáætlunar BVS og skýrslu frá URG og þau verkefni sem snúa að ungmennaráðinu í aðgerðaáætluninni.
Ungmennaráð Garðabæjar
04
2. fundur
2. Rætt um samgöngur, klapp appið o.fl.
a) Senda ítrekun á Strætó.
b) Athuga með að innleiða strætómiðana aftur.
c) Freyja og María búa til drög af pósti og kynna fyrir okkur á næsta fundi.
Ungmennaráð Garðabæjar
05
2. fundur
1. UNICEF og Strætó, samantekt af fundi.
a) Ráðgjafahópur Strætó og umboðsmanns barna héldu erindi.
b) Allir tóku þátt í borðavinnu.
c) Almenn umræða um Strætó.
d) Breytingar á leiðakerfi bæði í strætó 24 og 23.
e) Komið sérstakt forrit fyrir krakka 11 ára og yngri.
f) Byrjað að sekta fyrir að svindla á kerfinu.
g) Strætó hættir að leyfa að borga með peningum.
h) Almennar ábendingar frá krökkunum.
Ungmennaráð Garðabæjar
06
1. fundur
a. Óskað eftir því að taka niður forvarnarmyndbandið, Tommi fer í það.
b. Leggja áherslu á að fá skyndihjálp inn í alla grunnskóla, mögulega Fjölbrautarskólann í Garðabæ.
c. Rætt um nýja yfirlýsingu strætó.alum. Spurningar til þeirra:
i. Mikilvægt fyrir ungmenni í Garðabæ að geta nýtt sér internet tengingu.
ii. Klapp appið virkar ekki nema með nettengingu.
iii. Þarf að passa upp á aðgengi fyrir börn og ungmenni, ekki allir sem hafa aðgang að fríu interneti.
d. Athuga hvernig fór með verkefnið hjá velferðarsviði.
i. Ákveðið var að fara í húsgagnaleiðangur með fulltrúum frá velferðarsviði á fundi með Önnu Eygló Karlsdóttur, Deildarstjóra.
e. Ákveðið var að halda betur um verkefni sem við tökum að okkur.
f. Óskað eftir hópefli - mögulega ferð til Akureyrar að hitta ungmennaráð þar.
g. Ungmennaráðið vill auglýsa sig betur, kynna starfsemi, herferð á samfélagsmiðlum, peysur merktar Ungmennaráðinu.
h. Ákveðið var að plana hitting með Ungmennaráði Reykjanesbæ í byrjun febrúar.
i. Ákveðið var að athuga með það að senda út á fyrirtæki og óska eftir afsláttum.
j. Athuga hvort það sé hægt að óska eftir samstarfi með einhverskonar sjálfsstyrkingar námskeiðum, til þess að betrumbæta ræðumennsku og sjálfsöryggi hjá fulltrúum Ungmennaráðsins.
Ungmennaráð Garðabæjar
07
1. fundur
a. Farið yfir fundarramma okkar.
b. Ungmennaráðið var sammála að taka út “fulltrúar ungmennasviðs? þar sem það á ekki við (September).
c. Allir sammála um að setja inn fastann hugmyndafund í september.
d. Samþykkt að færa “skipulagsmál og samgöngur? í janúar/febrúar í stað september.
e. Senda inn ítrekun að við viljum vera með í ákvarðanatöku á sviði fjármála.
f. Ákveðið að bæta “yfirferð verkefna? í febrúar.
g. Ákveðið að taka út ungmennaþing í febrúar, haldið í október/nóvember.
h. Kynna okkur betur velferðarsvið Garðabæjar.
- Betri samskipti og samstarf?
i. Ákveða hverjir myndu fara í hverja nefnd í september/október.
Ungmennaráð Garðabæjar
08
1. fundur
a. Farið léttlega yfir reglur Ungmennaráðsins samkvæmt erindisbréfi.
b. Mikilvægt að uppfæra, er bara gilt til fjögurra ára.
c. Samþykkt af Ungmennaráði að taka út varafulltrúa, óþarfi.
d. Óskað eftir að fulltrúar frá Ungmennaráði sitji í nefndum bæjarins.
e. Hækka aldur úr 20 í 22 ára
f. fjölga fulltrúum úr 11 í 13 fulltrúa