Hegranes 29 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Málsnúmer 2501385
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
2. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að Hegranesi 29 um útfærslu á fyrirhugaðri viðbyggingu á framhlið núverandi húsnæðis. Byggingarreitur er bogadreginn þar sem að lóðin er staðsett þar sem gatan sveigir. Viðbygging færi lítillega út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem er í samræmi við þá hugmynd sem fyrirspurn lýtur að til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness.