Stækkun Tónlistarskólans - fyrsta skóflustungan.
Málsnúmer 2503122
Ferill máls
Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar
01
13. fundur
Formaður fór yfir skóflustunguna og kynnti stöðuna á framkvæmdum sem hafnar eru við stækkun tónlistarskólans.
Nefndin fagnar þeim merka áfanga að fyrsta skóflustungan að stækkun Tónlistarskólans hafi verið tekin og óskar skólanum innilega til hamingju með þetta mikilvæga skref í uppbyggingu og framtíðarsýn hans. Nefndin lýsir mikilli ánægju með verkefnið, telur það til mikilla framfara fyrir skólastarfið og menningarlíf bæjarins og hlakkar til að fylgjast með framvindu þess á næstu misserum
Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar
02
12. fundur
Skólastjóri kynnti stöðuna á stækkun skólans s.s. útboð og væntanlegt upphaf framkvæmda.