Bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi samræmda úttekt á slökkvivatni vatnsveitna á Íslandi, dags. 19. mars 2025.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
12. (2160). fundur
Bréf Brunavarnasviðs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS), Félags slökkviliðsstjóra á Íslandi (FSÍ) ásamt Fagráði vatnsveitna SAMORKU, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi varðandi samstarf er varðar samræmda úttekt á slökkvivatni vatnsveitna á Íslandi, lagt fram.
Í bréfinu er farið yfir mikilvægi þess að tryggja gott samstarf milli vatnsveitna og slökkviliða og að horft sé til takmarkandi þátta og svæða veitukerfa sem og áhættumats slökkviliðs á hverju starfssvæði.
Meðfylgjandi erindinu fylgdi forskráð verklag sem áðurnefndur samráðshópur hefur komið sér saman um varðandi framkvæmdina sem og spurningarlisti varðandi uppbyggingu og áfallaþol viðkomandi veitukerfis.
Bæjarráð vísar erindinu til úrvinnslu á umhverfissviði.