Beint í efni

Holtsbúð 57 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Málsnúmer 2503383

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

6. fundur

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu girðingar á mörkum einbýlishúslóðarinnar og göngustígs Garðabæjar að austanverðu. Teikning fylgir fyrirspurn en þar kemur fram að hæsti hluti girðingar yrði 1,8 m yfir landi. Skipulagsnefnd bendir á að í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar sem aðgengileg er á vef Garðabæjar segir: Garðabær sem landeigandi samþykir almennt ekki veggi eða girðingar á lóðarmörkum sem snúa að opnum svæðum, stígum og safngötum hærri en 1,50 m.
Þar sem að girðingin er uppbrotin og rými fyrir gróður við stíginn fellst skipulagsnefnd á útfærsluna þó að hluti girðingar sé allt að 1,8 m. Þess skal þó gætt við staðsetningu sorpíláta að þau byrgi ekki sýn gangandi og hjólandi vegfarenda og dragi þar með úr umferðaröryggi.