Húsnæðismál bæjarskrifstofu.
Málsnúmer 2503412
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
12. (2160). fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir stöðu húsnæðismála á bæjarskrifstofum, en nýverið komu í ljós rakaskemmdir og myglugró greindist í sýnum á 3. hæð bæjarskrifstofanna.
Viðbragðsáætlun hefur verið sett af stað og er unnið að viðgerðum og viðbrögðum í samræmi við viðbragðsáætlunina. Umfang skemmdanna liggur ekki fyrir, en um staðbundnar skemmdir virðist vera að ræða og hamla þær ekki eðlilegri starfsemi á bæjarskrifstofunum.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til frekari eftirfylgni.