Ránargrund 4 - Fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
12. (2160). fundur
Lögð fram fyrirspurn Zeppelin arkitekta f.h. World Class vegna breytinga á deiliskipulagi Ránargrundar 4 (Sjálands). Í erindinu koma fram hugmyndir um stækkun húsnæðisins með það að markmiði að opna annars vegar líkamsræktarstöð og heilsulind í viðbyggingu og hins vegar veitingastað og veislusal í núverandi byggingu.
Bæjarráð telur nauðsynlegt að málið verði rýnt sérstaklega m.t.t. nokkurra þátta. Fyrir liggur að Arnarnesvogur er friðlýstur sbr. auglýsingu í B deild Stjórnartíðinda nr. 878/2009 sem gæti haft áhrif á umræddar hugmyndir.
Þá eru áform fyrirspyrjanda um byggingarmagn umfram skilgreiningar í deiliskipulagi Ása og Grunda, sem ná jafnframt út fyrir byggingarreit skv. skipulaginu og hafa áhrif á lóð Ránargrundar 2. Einnig þarf að rýna umferðarsköpun og bílastæðaþörf skv. áformum fyrirspyrjanda.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs til skoðunar.