Fundargerð bæjarráðs frá 15/4 ´25.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (959). fundur
Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 8.tl. veggi, girðingar og smáhýsi - minnisblað umhverfissviðs.
Ingvar Arnarson ræddi 9.tl. ósk um lóð fyrir hjúkrunarheimili í Garðabæ.
Almar Guðmundsson ræddi 8.tl. veggi, girðingar og smáhýsi - minnisblað umhverfissviðs og 9.tl. ósk um lóð fyrir hjúkrunarheimili í Garðabæ.
Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls að nýju og ræddi 8.tl. veggi, girðingar og smáhýsi - minnisblað umhverfissviðs.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. tillögur að breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 9.tl. veggi, girðingar og smáhýsi - minnisblað umhverfissviðs og 1.tl. tillögur að breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 10.tl. stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ lýsa ánægju sinni með góða stöðu innritunarmála í leikskólum bæjarins. Innritun fyrir skólaárið 2025-2026 fór fram dagana 2.-3. apríl og gekk afar vel. Alls voru 235 börn innrituð í leikskóla og 200 flutningsbeiðnir afgreiddar. Sérstaklega gleðilegt er að öllum börnum, fæddum í júlí 2024 eða fyrr, var boðin leikskólavist, þar með talið börnum allt niður í átta mánaða aldur. Þá tókst í flestum tilvikum að verða við fyrsta vali foreldra og tryggja systkinum leikskólapláss í sama leikskóla. Þetta endurspeglar sveigjanlega og fjölskylduvæna þjónustu í leikskólamálum Garðabæjar. Næsta innritunarlota fer fram í maí og gert er ráð fyrir að þá fái börn, fædd í ágúst og september 2024, leikskólapláss. Við, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munum áfram leita leiða til að mæta þörfum íbúa í sívaxandi sveitarfélagi og tryggja öfluga leikskólaþjónustu. Að lokum viljum við færa starfsfólki leikskóla og öllum þeim sem komu að framkvæmd innritunarmála innilegar þakkir fyrir faglegt og mikilvægt starf."
Fundargerðin sem er 15. tl. er samþykkt samhljóða.