Samstarfsyfirlýsing um EXIT.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
44. (2192). fundur
Lagt fram minnisblað Ríkislögreglustjóra og drög að samstarfsyfirlýsingu um EXIT - leið úr afbrotum. Um er að ræða þverfaglegt samstarf milli lögreglu, fangelsisyfirvalda, sveitarfélaga o.fl. sem byggist á þeirri sameiginlegu sýn að draga úr ítrekun afbrota, efla samfélagsöryggi og stuðla að heildrænni nálgun á afbrotavarnir, endurhæfingu og félagslega aðlögun.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til úrvinnslu á velferðarsviði.
Velferðarráð Garðabæjar
02
7. fundur
Exit- leið út úr afbrotum, kynning á verkefninu.
Eygló Harðardóttir, verkefnastjóri afbrotavarna hjá Ríkislögreglustjóra sat fundinn undir þessum lið, kynnti verkefnið og fór yfir drög að samstarfsyfirlýsingu.
Auk þess sátu fundinn undir þessum lið Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, Matthías Matthíasson sálfræðingur geðheilsuteymis fanga innan Fangelsismálastofnunar og Þráinn Farestveit framkvæmdastjóri áfangaheimilis Verndar.
Velferðarráð vísar erindinu til skoðunar innan velferðarsviðs.