Frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 270. mál. - Athugasemdir Garðabæjar við framkomið lagafrumvarp.
Málsnúmer 2504499
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
18. (2166). fundur
Bæjarstjóri kynnti drög að athugasemdum Garðabæjar við framkomið lagafrumvarp sem send verða Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, sem hefur málið til meðferðar.
Í athugasemdunum eru áréttuð sjónarmið Garðabæjar í áður innsendum athugasemdum, ásamt viðbótargögnum.
Bæjarráð Garðabæjar
02
17. (2165). fundur
Lagt fram frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 270. mál, sem er sent til umsagnar. Umsagnarfrestur til umhverfis- og samgöngunefndar er til 13. maí 2025.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma á framfæri athugasemdum Garðabæjar við framkomið lagafrumvarp þar sem áréttuð verði sjónarmið Garðabæjar í áður innsendum athugasemdum.