Fundargerð bæjarráðs frá 13/5 ´25.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (959). fundur
Ingvar Arnarson ræddi 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Við í Garðabæjarlistanum teljum mjög mikilvægt að hlustað verði á raddir íbúa hvað varðar breytingar á skipulagi miðbæjar og þess vegna brýnt að forkynningarfundur verði vel auglýstur með góðum fyrirvara. Mikilvægt er að horft sé til nýtingar svæðisins sem miðbæjarkjarna íbúa bæjarins og að lögð verði áhersla á að svæðið sé metið út frá þeim markmiðum sem hafa verið sett um aðlaðandi og heildstæðan miðbæ líkt og var samþykkt í bæjarstjórn 16.júní 2022 með skipun undirbúningsnefndar um uppbyggingu miðbæjar í Garðabæ."
Björg Fenger ræddi 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Miðbær svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.
Ingvar Arnarson tók til máls að nýju og ræddi 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Miðbær svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Miðbær svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.
Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls og ræddi 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Miðbær svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting og 13.tl. stefnu í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun 2025-2026.
Harpa Rós Gísladóttir ræddi 13.tl. stefnu í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun 2025-2026 og 14.tl. Gott að eldast - Efling og þróun dagdvala á landsvísu - skýrslu starfshóps - mars 2025.
Björg Fenger tók til máls að nýju og ræddi 13. tl. stefnu í málefnum eldri borgara - Aðgerðaráætlun 2025-2026.
Fundargerðin sem er 17.tl. er samþykkt samhljóða.