Beiðni um endurupptöku kærumáls ÚUA nr 91/2025 - deiliskipulag Arnarlands.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
30. (2178). fundur
Lögð fram afgreiðsla Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 91/2025, þar sem farið var fram á endurupptöku á máls kæranda, þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar um að samþykkja deiliskipulag Arnarlands.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði endurupptökubeiðninni þar sem ekki þóttu uppfyllt skilyrði um að ákvörðun hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, né að íþyngjandi ákvörðun hafi byggst á atvikum sem breyst hefðu verulega frá því að ákvörðun var tekin.
Bæjarráð Garðabæjar
02
24. (2172). fundur
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 91/2025, þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar um að samþykkja deiliskipulag Arnarlands.
Úrskurðarorð voru á þá leið að málinu var vísað frá úrskurðarnefndinni. Kærandi hefur farið fram á endurupptöku málsins. Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.