Beint í efni

Beiðni um endurupptöku kærumáls ÚUA nr 93/2025 - deiliskipulag Arnarlands.

Málsnúmer 2506654

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

30. (2178). fundur

Lögð fram afgreiðsla Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 93/2025, þar sem farið var fram á endurupptöku á máls kæranda, þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar um að samþykkja deiliskipulag Arnarlands.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði endurupptökubeiðninni þar sem ekki þóttu uppfyllt skilyrði um að ákvörðun hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, né að íþyngjandi ákvörðun hafi byggst á atvikum sem breyst hefðu verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Bæjarráð Garðabæjar

02

24. (2172). fundur

Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 93/2025, þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar um að samþykkja deiliskipulag Arnarlands og breytingu á aðalskipulagi. Úrskurðarorð voru á þá leið að málinu var vísað frá úrskurðarnefndinni. Kærandi hefur farið fram á endurupptöku málsins. Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.