Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 17/9 ´25.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (965). fundur
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. afreksstyrki 2025 - seinni úthlutun, 2.tl. umsókn um styrk til handknattleiksdeildar Stjörnunnar vegna forkeppni Evrópudeildar, 3.tl. reglur um ferðastyrki ÍTG og lagði til að bókun ÍTG yrði áréttuð af bæjarstjórn og tekin upp í fundargerð: "ÍTG hvetur til þess að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu geri úttekt á reglum sem gilda um ferðastyrki á svæðinu og skoði fýslileika þess að þær verða samræmdar eins og kostur er."
Þá ræddi Hrannar Bragi 4.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2025, 5.tl. íþrótta- og tómstundaþing Garðabæjar, 6.tl. framtíðar uppbyggingu íþróttaaðstöðu, 7.tl. GKG kynningu fyrir ÍTG og 8.-28.tl. umsóknir um styrki úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 6.tl. framtíðar uppbyggingu íþróttaaðstöðu.
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 4.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2025.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 4.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2025.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 4.tl. forvarnarviku Garðabæjar 2025 og 6.tl. framtíðar uppbyggingu íþróttaaðstöðu.
Fundargerðin er lögð fram.