Fundargerð bæjarráðs frá 30/9 ´25.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (965). fundur
Björg Fenger ræddi 1.tl. opnun tilboða í byggingarrétt lóða í vetrarmýri, 2.tl. hjúkrunarheimili og þjónustu við fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými og lagði til að bókun bæjarráðs yrði áréttuð af bæjarstjórn og tekin upp í fundargerð:
"Bæjarráð kallar eftir ákvörðunum stjórnvalda um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Garðabæ. Loforð sveitarfélagsins um lóð liggur fyrir og allar skipulagsforsendur sömuleiðis. Aðeins 60 hjúkrunarrými eru í dag í okkar vaxandi sveitarfélagi sem telur rúmlega 21 þúsund íbúa.
Þá hvetur bæjarráð yfirvöld til að standa við löngu gefið loforð um 10 ný dagdvalarrými á hjúkrunarheimilinu Ísafold. Tvö ár eru síðan heilbrigðisráðuneyti heimilaði fleiri rými, sem ekki hefur verið efnt.
Garðabær lýsir sig reiðubúinn í samstarf við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um mikilvæga samþættingu á heimahjúkrun og heimaþjónustu fyrir eldri íbúa, sem yrði til hagsbóta fyrir notendur þjónustunnar."
Þá ræddi Björg 4.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Kópavogsbær - aðalskipulagsbreyting og deiliskipulagsbreyting Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavellir, umsögn.
Fundargerðin sem er 8.tl. er samþykkt samhljóða.